Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
21.02.2025 kl. 06:00

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 224. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Veistu hvar þessi skemmtilega mynd er tekin og jafnvel hvaða fólk er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist síðasta föstudag. Ekki hafa borist upplýsingar um hvar hún er tekin eða hvað fólk gæti þarna verið á ferð. Lesendur eru því hvattir til að rýna vel í myndina.