Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
14.02.2025 kl. 06:00

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 223. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Veistu hvar þessi skemmtilega mynd er tekin og jafnvel hvaða fólk er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist síðasta föstudag. Þetta er Höfði - hús Héðins Valdimarssonar og Guðrúnar Pálsdóttur í Mývatnssveit. Að baki og til hægri sést grunnur og bakveggur á húsi Bárðar Sigurðssonar ljósmyndara sem kallað var „Bárðarbás“ í grínkveðlingum, eins og einn lesandi skrifaði.