Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 206. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, flestar hafa vakið mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar myndirnar.

Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Hún er tekin í Vestmannaeyjum, Heimaklettur áberandi í baksýn og glöggir lesendur voru fljótir að bregðast við. Eyjamaðurinn Guðni Einarsson (Gíslasonar í Betel), lengi blaðamaður á Morgunblaðinu, skrifar: Þetta er Heimatorg á Heimaey. Til vinstri er Rafstöðin sem sá Eyjamönnum fyrir rafmagni með díselvélum og til hægri húsið Jómsborg. Svæðið og húsin fóru undir hraun í eldgosinu 1973.
  • Vert er bæta því við að 18. gamla myndin sem Akureyri.net birti, 12. mars 2021, var af Jómsborg. Þar segir að húsið hafi verið reist árið 1912 af Jóni Sighvatssyni.  

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR