Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
02.08.2024 kl. 09:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 195. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Upplýsingar um hana bárust fljótlega eftir að hún birtist: Þetta er Jóhannes Frímannsson (1880-1963) bóndi á Gilsá í Eyjafirði. Þarna er hann að tæma koppinn sinn, væntanlega fyrir utan torfbæinn Gilsá.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR