Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
26.07.2024 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 194. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Hefurðu hugmynd um hvar þessi magnaða mynd gæti verið tekin? Jafnvel hvaða maður þetta er? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
Svona er myndin óskorin á Minjasafninu:
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Horft er norður Ljósvallagötu í Reykjavík, kirkjugarðurinn við Suðurgötu, Hólavallagarður, er handan girðingarinnar hægra megin á myndinni. Hús við Sólvallagötu og Hólatorg í fjarska. Ekki hefur tekist að bera kennsl á manninn.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR