Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
12.07.2024 kl. 09:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 192. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Veistu hvar myndin hér að ofan er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta mun vera Klettsflöt í Húsadal í Þórsmörk; Flötin, eins og hún er gjarnan kölluð. Lesandi skrifaði: Sé ekki betur en kletturinn Assa sé þarna í fjarska. Og Markarfljót og Markarfljótsaurar í vestri. Þarna var búið 1892-3. Rústirnar á Flötinni eru síðan þá. Annar skrifaði: Bíllinn var trússbíll, Bedford QL, X 103, í eigu Bjarna Guðmundssonar frá Túni.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR