Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 191. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Veistu hvar myndin hér að ofan er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Ekki stóð á svörum frá lesendum. Mennirnir hjóla hér austur Miklubraut og eru skammt austan við gatnamót við Háaleitisbraut. Úlfarsfell er til vinstri, Ártúnsbrekka og kartöflugeymslunar hægra megin í fjarska. Býlið Sjónarhóll, með þrjár burstir, stendur við Grensásveg og lengst til vinstri má sjá býlin Urðir og Hálogaland, efst á Sólheimahæð. Lesandi upplýsir að húsið Urðir  standi enn og sé í dag Sólheimar 36. Hálogaland brann í maí 1972 og var rifið í kjölfarið.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR