Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 189. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Veistu hvar myndin hér að ofan er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er sæluhúsið við Jökulsá á Fjöllum, skammt norðan við brúna hjá Grímsstöðum. Margir lesendur bentu á það. Gísli Sigurgeirsson fv. fréttamaður bætti við: Húsið var reist árið 1883 úr tilhöggnu grjóti sem tekið var skammt frá byggingarstað. Húsið er sögusvið Aðventu Gunnars Gunnarssonar, en Fjalla-Bensi leitaði þarna oft skjóls. Ekki mun hann þó alltaf hafa sofið þar vært, því draugagangur var sagður í húsinu.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR