Fara í efni
Fréttir

Flautur á flakki: nemendur Tónak á ferð

Sjaldan hefur jafn stór hópur framhaldsnemenda verið í flautusamspili Tónlistarskólans á Akureyri. Dagana 24.-29. apríl ætla sex nemendur þaðan og einn píanónemandi að fara til Frakklands í tónleika- og menningarferð. Kennararnir Petrea Óskarsdóttir (flauta) og Þórarinn Stefánsson (píanó) hafa undirbúið nemendurna fyrir tónleikana og verða fararstjórar. Hópurinn heldur tónleika í Akureyrarkirkju á morgun, miðvikudaginn 9. apríl kl 18, og hitar upp fyrir utanlandsferðina.

„Tilefni ferðarinnar er að hér er um einstakan hóp að ræða,“ segir Petrea. „Þær hafa spilað saman síðastliðin fjögur ár og næsta vor skilja leiðir vegna háskólanáms. Ferðin á að vera hvatning, menningarupplifun og tónleikaferð þar sem kynning á íslenskri flaututónlist verður í fyrirrúmi.“

Petrea bjó þrjú ár (1990-1993) í París, stundaði nám í flautuleik í Conservatoire National de Region de Versailles og langaði þess vegna að ferðast með nemendurna til Frakklands.

Verkefnið hefur fengið heitið 'Flautur á flakki', og í raun hefst það innan landsteinanna, en hópurinn heldur tónleikana í Akureyrarkirkju fyrst. Mánudaginn 14. apríl verða síðan tónleikar í Hólaneskirkju á Skagaströnd kl 20:00. Fimmtudaginn 24. apríl verður flogið til Parísar og haldið beint til Normandí þar sem dvalið verður fyrstu dagana.

Þrennir tónleikar í Frakklandi

Í Normandí verða tvennir tónleikar, þeir fyrri verða í samstarfi við þjóðlagahópinn Tradimardi föstudagskvöldið 25. apríl í Le CANA í Creully og seinni tónleikarnir verða þann 26. apríl í Notre-Dame-d´Estrées kirkjunni í útjaðri Caen. Ferðinni lýkur svo í París þar sem lokatónleikarnir verða í Auditorium í Conservatoire í 18. hverfi þann 28. apríl í samvinnu við flautukennara skólans.

Hópurinn státar af fjölbreyttum uppruna, en nemendur eru á aldrinum 16-20 ára og koma frá Patreksfirði, Hrútafirði, Skagaströnd, Hofsósi og Eyjafirði. „Flestar komu í Tónlistarskólann á Akureyri um leið og þær hófu nám í Menntaskólanum á Akureyri og hafa æft saman síðastliðin fjögur ár,“ segir Petrea. „Þær hafa komið saman fram á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leikið á Barnamenningarhátíðinni á Akureyri og Barnamenningarhátíðinni í Reykjavík.“

Efnisskrá tónleikanna inniheldur þekkt klassísk verk en að stórum hluta íslensk samleikverk fyrir allt að sex flautur og píanó eftir tónskáldin Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, John Speight, Báru Grímsdóttur og auk þess píanóverk eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson o.fl.