Fjögur KA-mörk og sigur á Keflvíkingum
KA vann Keflavík 4:2 á heimavelli í dag í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. KA-menn léku vel í fyrri hálfleik og þá var enga bikarþynnku að sjá á liðinu, en frammistaðan í þeim seinni var hins vegar ekki til útflutnings. Ef til vill er ekki auðvelt að gíra sig upp í leik sem skiptir litlu sem engu máli.
KA-strákarnir settu í efsta gír strax í byrjun, Jakob Snær Árnason kom þeim í 1:0 á þriðju mínútu og Hallgrímur Mar Steingrímsson bætti marki við á sjöttu mín.
Eftir rúmlega stundarfjórðung minnkuðu gestirnir muninn þegar Ísak Daði Ívarsson skoraði en fljótlega var munurinn orðinn tvö mörk á ný eftir að Ásgeir Sigurgeirsson þrumaði boltanum í Keflavíkurmarkið.
Nacho Heras skoraði fyrir Keflvíkinga á annarri mínútu seinni hálfleiks og gestirnir gerðu allt hvað þeir gátu til að skora meira, því þeir eru í vondum málum í neðsta sætinu; róa lífróður í deildinni. Ekki tókst þeim að skora þriðja sinni en Hallgrímur Mar sem gerði hins vegar annað mark sitt og fjórða mark KA rétt fyrir leikslok.
Myndasaga í fyrramálið
Smellið hér til að sjá leikskýrsluna á vef KSÍ