Fara í efni
Menning

Feðgarnir Þórarinn og Halldór í Davíðshúsi

Feðgarnir Þórarinn og Halldór Eldjárn flytja dagskrá í Davíðshúsi í kvöld þar sem þeir tvinna saman ljóð Þórarins og tónlist Halldórs.

„Þórarin Eldjárn þarf vart að kynna enda ljóðlist hans „orðin íslensk klassík“ eins og Sjón kemst að orði í kynningu á bókinni 100 kvæði, sem nýverið kom út í tilefni af 50 ára höfundarafmæli Þórarins,“ segir í tilkynningu frá Minjasafninu á Akureyri.

„Halldór Eldjárn er tónlistarmaður og forritari. Í sköpun sinni spinnur hann vef úr þessum tveimur þráðum svo úr verður stór hljóðheimur. Halldór hefur komið víða við unnið með ýmsum listamönnum s.s. Ólafi Arnalds, GDRN og Björk. Hann stofnaði hljómsveitina Sykur ásamt félögum sínum árið 2008 sem gefið hefur út þrjár hljómplötur. Fyrsta sólóplata hans kom út árið 2019 og ber nafnið Poco Appollo.“

Ljóð í hljóði hefst kl. 20 í kvöld í Davíðshúsi, Bjarkarstíg 6 á Akureyri.

Aðgangseyrir er 1000 kr. – ókeypis fyrir handhafa safnapassa Minjasafnsins á Akureyri