Erilsamt hjá lögreglu – nokkuð um foktjón
Nóttin var mjög erilsöm hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, að því er kemur fram á Facebook síðu embættisins.
„Eftir nóttina eru skráð í dagbók lögreglunnar á Norðurlandi eystra 39 mál. Af þeim 39 málum eru 14 mál er varða svokölluð foktjón. Tilkynningar eru enn að berast um foktjón,“ segir þar fyrir um klukkustund.
„Í gildi er núna appelsínugul veðurviðvörun vegna úrkomu og óvissustig vegna hennar. Á Akureyri virðist enn vera töluverður vindur eftir nóttina og þá virðist vera að bæta vel í úrkomu.
Lögregla vil beina þeim tilmælum til fólks að vera ekki á ferðinni að óþörfu og huga að lausamunum.“
Að auki segir lögreglan að tveir gisti fangageymslur. „Annar vegna gruns um heimilisofbeldi og hinn vegna hættulegrar líkamsárásar. Gert er ráð fyrir að mönnunum tveimur verði sleppt úr haldi eftir skýrslutökur.“