Enginn vill láta teyma sig á asnaeyrunum
![](/static/news/lg/siggi-ha-hb.jpg)
„Þegar ljóst var að ekki stóð til að hafa raunverulegt samtal og samráð um þetta ferli allt saman spyrnti fólk að sjálfsögðu við fótum. Það vill enginn láta teyma sig á asnaeyrunum sama hvert leiðin liggur. Þess vegna er nauðsynlegt að staldra nú við og leyfa raunverulegu samtali að þroskast á grundvelli vandaðra upplýsinga, greiningar og samráðs, þannig að þokkaleg sátt geti orðið um niðurstöðuna, hver sem hún verður.“
Þetta segir Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, í ítarlegri grein um viðræður milli stjórnenda við Háskólann við Háskólann á Akureyri (HA) og Háskólann á Bifröst (HB) um mögulega sameiningu, í grein sem birtist á Akureyri.net í dag.
Sigurður gerir athugasemdir við fjölmargt í ferlinu, segir mikilvægt að vandað verði til framhaldsins og athugasemdum mætt með traustum upplýsingum og ásættanlegum rökum.
Smellið hér til að lesa grein Sigurðar