Engin innköllun á hlutum í Búsæld
Ekki kom til þess að Kaupfélag Skagfirðinga þyrfti að grípa til innköllunar á hlutum Búsældar við kaupin á Kjarnafæði-Norðlenska. Búsæld seldi hlut sinn í KN í heild til KS. Bændablaðið greindi frá þessu fimmtudaginn 19. desember.
Áður hafði komið fram hjá Bændablaðinu og Ríkisútvarpinu að KS hafi krafist innlausnar á grundvelli hlutafjárlaga á hlutum nokkurra bænda í Búsæld sem vildu halda sínum eignarhlut. Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri KN, segir þær fréttir ekki réttar. Samtöl áttu sér stað í sumar, eftir undirritun kauptilboðs í byrjun júlí og fram að kaupsamningi í september, að því er Bændablaðið hefur eftir Ágústi Torfa. Hann segir það ekki hafa verið stefnuna í upphafi að kaupa félagið í heild, en þegar ljóst varð hve stór hluti hluthafa Búsældar vildi selja kom fram að kaupandinn, KS, væri tilbúinn og sæi fyrir sér að klára viðskiptin að fullu þar sem örhlutur væri eftir og ljóst að við þær aðstæður væri einfaldast fyrir Búsæld að selja í heild. Það hafi því orðið sameiginleg niðurstaða í samtali á milli aðila málsins.
Búsæld átti um 43% hlut í KN, en hluthafar í Búsæld voru 465 í lok árs 2023. Búsæld samþykkti að selja óbeinan hlut hlutafa í KN. Eigendur um 93% hlutafjár í Búsæld kváðust vilja selja sína hluti, tæp 2% vildu halda sínum hlut en ekki kom fram afstaða hjá eigendum 5% hlutafjár. Þá höfðu meðeigendur Búsældar, bræðurnir Eiður og Hreinn Gunnlaugssynir, stofnendur Kjarnafæðis, samþykkt söluna og lá því fyrir að 97% hlutafjár að lágmarki myndu ganga til KS við söluna. Í ljósi þessarar afgerandi niðurstöðu hluthafa Búsældar til sölunnar ákvað stjórn Búsældar að selja hlutinn í heild.
„Ekki var um neina innköllun að ræða á neinum hlut, KS kaupir allt hlutafé í KN við undirritun kaupsamnings, sem var í september. Búsæld hefur svo komið þeim verðmætum sem félagið fékk fyrir hlut sinn til hluthafa í framhaldinu,“ segir Ágúst Torfi í samtali við Bændablaðið.