Fara í efni
Fréttir

Eldur kviknaði í skúr við hús í Innbænum

Slökkviliðsmenn að störfum við skúrinn í dag. Mynd: Þorgeir Baldursson

Eldur kviknaði í geymsluskúr á bak við íbúðarhús við Hafnarstræti í Innbænum í dag. Tveir slökkviliðsbílar voru sendir á staðinn, ekki tók langan tíma að ráða niðurlögum eldsins en skemmdir eru miklar. Enginn var nálægur og ekki vitað um eldsupptök.