Ekki stendur til að fækka ferðum Sævars
Ekki er fyrirhugað að fækka ferðum Hríseyjarferjunnar Sævars en hins vegar vill Vegagerðin auka svigrúm til að ekki þurfi að sigla að óþörfu með tóma ferju. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar í kjölfar þess að Akureyringar gerðu athugasemdir við útboðsgögn og sögðu að til stæði að fækka ferðum – sjá hér.
„Í tilboðsgögnum kemur fram að óskað er eftir tilboðum í 2.840 ferðir sem er lægri tala en þær 3.100 ferðir sem gilda á yfirstandandi tímabili. En hins vegar hljóðar útboðið upp á 2.840 ferðir með möguleika á 20 prósent fleiri ferðum sem verður nýtt á næstu árum þannig að ferðatíðnin verður óbreytt 3.100. Möguleiki verður þá líka á því að fjölga ferðum upp í ríflega 3.400 en engar breytingar verða gerðar á ferðaáætlun nema í samráði við heimafólk,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Halldór Jörgensson, forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni, segir að ekki standi til að breyta siglingum ferjunnar Sævars, sem siglir milli Hríseyjar og Árskógssands.
„Ekki eru fyrirhugaðar breytingar á ferðum ferjunnar út í Hrísey. Hins vegar viljum við ekki sigla tómri ferju á milli lands og Hríseyjar. Því viljum við hjá Vegagerðinni hafa svigrúm til að breyta áætlun í samráði við íbúa ef útlit er fyrir mjög slæma nýtingu á ferðum ferjunnar. Það er best að sigla ekki ef það eru ekki farþegar um borð. Það er stóra málið,“ segir Halldór.
„Í október óskaði Vegagerðin eftir tilboðum í rekstur Hríseyjarferju 2023-2025 - Sérleyfi fyrir Vegagerðina á ferjuleiðinni Hrísey – Árskógssandur - Hrísey, þ.e. að annast fólks- og vöruflutninga til og frá Hrísey. Þar kemur fram að bjóðandi skal nota ferjuna m/s Sævar sem er í eigu kaupanda og er til sýnis í samráði við kaupanda. Samningstími er 3 ár með möguleika á framlengingu allt að 2 sinnum, 1 ár í senn. Útboðsfrestur er til 29. nóvember,“ segir á vef Vegagerðarinnar.