Fara í efni
Mannlíf

Dularfullur listamaður ávarpar Akureyringa

Boðberi sjálfsþekkingar spyr vegfarendur áleitinnar spurningar. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Dularfullar persónur í svarthvítu dúkka upp á veggjum og við innganga í miðbæ Akureyrar um þessar mundir. Persónurnar eru spreyjaðar með svörtu á pappa og ónefndur listamaður lætur svo ýmiskonar skilaboð fylgja með. Skilaboðin eru af heimspekilegum toga, þar sem vegfarendur eru ýmist spurðir áleitinna spurninga um forgangsröðun í lífinu eða sagt að slaka á eða kynnast sjálfum sér.

Blaðamaður Akureyri.net hefur myndað þessi verk þegar þau birtast, en vert er að taka fram að persónan sem er í raun sú eina í fullri stærð, og situr við innganginn að Hafnarstræti 95, er ekki lengur þar. Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort að listamaðurinn dularfulli haldi áfram að senda Akureyringum skilaboð. Og hver ætli sé hér að verki? Enginn hefur lýst verknaðinum á hendur sér, að því er blaðamaður best veit. 

 

Þessi boðberi vaktar Göngugötuna fyrir framan Backpackers. Mynd: RH

 

'Slakaðu', segir þessi áleitni boðberi, sem prýðir auglýsingasúluna við Ráðhústorg. Oft hefur því verið haldið fram að skilaboð í boðhætti geti haft öfug áhrif á viðtakandann, en það er eflaust misjafnt milli manna. Mynd: RH

 

Á leiðinni inn í Akureyrarapótek eða Skattinn getur verið erfitt að þurfa að velta fyrir sér spurningu af þessari stærðargráðu. Þessi boðberi er ekki lengur á sínum stað, en var þarna í allmarga daga. Mynd: RH