Djúpilækur heiðrar minningu Kristjáns
Minningu Kristjáns frá Djúpalæk verður gert hátt undir höfði á Græna hattinum í lok næsta mánaðar þegar hljómsveitin Djúpilækur heldur tónleika helgaða dægurlagatextum skáldsins.
Í kynningu þessa áhugaverða verkefnis segir að um sé að ræða „tónlistar- og sögustund með hljómsveitinni Djúpalæk, þar sem tónum og tali verður beint að textagerð Kristjáns frá Djúplæk við íslensk dans- og dægurlög.“
Á sjötta, sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar nutu dægurlög við texta skáldsins mikilla vinsælda og má þar nefna Sjómannavalsinn, Þórð sjóara og Vor í Vaglaskógi.
Kristján frá Djúpalæk árið 1986. Mynd: Skapti Hallgrímsson
„Það þótti nokkrum tíðindum sæta að svo mikið skáld skyldi leggja lag sitt við dægurmenninguna með þessum hætti, en Kristjáni þótti þetta sjálfsagt mál,“ segir í kynningu á tónleikunum.
Halldór Gunnarsson sem kynntist Kristjáni í bernsku, mun á milli laga fjalla um hvers vegna Kristján lagði áherslu á þetta listform, skoða tengsl hans við lagahöfunda, kanna hans pólitísku sýn, tengsl við átthagana og fleira.
„Kristján setti svip sinn á bæjarlíf Akureyrar, en þar bjó hann ásamt eiginkonu sinni Unni Friðbjarnardóttur stóran hlut ævi sinnar eða frá 1943-1949 og síðan frá 1961 til æviloka 1994. Meðfram skáldskapnum gegndi Kristján ýmsum stöfum á Akureyri, s.s. kennslu og var um tíma ritstjóri Verkamannsins.
Hljómsveitina Djúpalæk skipa auk Halldórs, sem spilar á harmonikku og píanó, þau Haraldur Þorsteinsson bassaleikari, Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari, Sigurður Reynisson trommuleikari og söngkonan Íris Jónsdóttir.“
Tónleikarnir verða á Græna hattinum laugardaginn 26. október kl. 15:00. Forsalan er á grænihatturinn.is