Fara í efni
Fréttir

Breyttur útivistartími barna 1. september

Mynd: Emma Frances Logan, Unsplash.com.

Útivistartími barna og unglinga fer eftir barnaverndarlögum og er breytilegur eftir árstíma. Breyting tekur gildi 1. september. Börn mega ekki vera á almannafæri utandyra eftir ákveðinn tíma nema í fylgd með fullorðnum. 

  • 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 20.
  • 13-16 ára mega vera úti til kl. 22, en bregða má út af reglunum þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.
  • Aldur miðast við fæðingarár.