Mannlíf
Bless í bili, JóiPé og Króli – MYNDIR
31.10.2022 kl. 21:00
Bless í bili! Króli og Jói Pé á fullu á stóra sviðinu í Hofi ásamt félögum úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Ljósmynd: Ármann Hinrik.
JóiPé og Króli – Jóhannes Patreksson og Kristinn Óli Haraldsson – héldu tónleika í Hofi á laugardagskvöldið; kveðjutónleika sem þeir kölluðu Bless í bili. Þórður Magnússon hafði útsett tónlist þeirra félaga og stjórnaði hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Stemningin var gríðarleg að sögn viðstaddra, strákarnir sungu af mikilli upplifun ásamt gestasöngvurum og salurinn tók á köflum vel undir! Ármann Hinrik var á staðnum með myndavélina.