Birkir til Vals – Aroni bætt í landsliðshópinn?
„Það er geggjað að vera búinn að skrifa aftur undir hjá Val eftir lærdómsríkt ár fyrir norðan. Ég er búinn að vera að æfa með strákunum hérna í sumar og ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um þegar Túfa [Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals ] vildi fá mig. Ég þekki hann vel og veit fyrir hvað hann stendur og hvað hann vill gera með hópinn. Það er gott að vera kominn aftur,“ segir Birkir við fótbolta.net.
Birkir er 24 ára. Hann fór 16 ára frá Þór til Heerenveen í Hollandi, samdi við Val eftir fjögur ár ytra og kom til Þórs á ný síðasta vetur.
Aron valinn?
Fyrir um það bil mánuði lýsti Hareide því yfir að Aron yrði ekki valinn í landsliðið á meðan hann væri leikmaður Þórs í Lengjudeildinni. Hann yrði að spila í sterkari deild. Aron samdi við Al-Gharafa í Katar í síðustu viku, tók þátt í fyrsta leiknum á þriðjudagskvöldið þegar félagið sigraði Al-Ain frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í Meistaradeild Asíu en fór af velli eftir um það bil 75 mínútur. „Við vitum ekki hvort hann sé meiddur. Hann varð þreyttur aftan í læri og fór af velli í leiknum. Hann fer í myndatöku og þá kemur það í ljós. Hann þarf að spila leiki til þess að koma sér aftur í sitt besta líkamlega form,“ hefur mbl.is eftir norska þjálfaranum.
Hvað sem öðru líður má gera ráð fyrir því að Aron Einar hafi bætt sig mjög sem leikmaður þá viku sem liðin er síðan hann samdi við Al-Gharafa ...