Fara í efni
Mannlíf

Bíladögum lýkur í dag með sýningu í Boganum

Mynd: Þorgeir Baldursson

Árlegum Bíladögum Bílaklúbbs Akureyrar, sem hófust á fimmtudag, lýkur formlega í dag með bílasýningu í Boganum eins og löng hefð er fyrir.

Í gærkvöldi fór fram það sem kallað er Burn-out á svæði Bílaklúbbsins að viðstöddu fjölmenni. Þorgeir Baldursson skaust þangað með myndavélina og festi meðfylgjandi augnablik á flögu.

Bílasýningin í Boganum hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 18.00.

Mynd: Þorgeir Baldursson