Fara í efni
Fréttir

Beint til Tenerife frá Akureyri á mánudag

Reglulega er flogið beint til útlanda frá Akureyrarflugvelli eins og Akureyri.net hefur oft fjallað um. Borgarferðir eru annað veifið í boði og einnig ferðir þangað sem tryggt er að sólin skín, að sögn.

Lítist einhverjum ekki nógu vel á veðurspána, og sá hinn sami í aðstöðu til að skjótast í frí með stuttum fyrirvara, er vert að benda á að flogið verður beint frá Akureyri til Tenerife á vegum Úrvals Útsýnar á mánudaginn.

Um 10 daga ferð er að ræða. Farið verður frá Akureyrarflugvelli í hádeginu og komið aftur að kvöldi 15. ágúst.

Heimasíða Úrvals Útsýnar