Fréttir
Bangsaspítalinn á Akureyri í dag
12.10.2024 kl. 08:00
Bangspítalinn sívinsæli verður starfræktur á Akureyri í dag, laugardaginn 12. október. Lýðheilsufélag læknanema sér um spítalann, sem verður opinn á Heilsugæslunni í Sunnuhlíð frá kl. 10.00 til 16.00.
„Öllum börnum ásamt foreldrum eða forráðamönnum er boðið að koma með veika eða slasaða bangsa á Heilsugæsluna á Akureyri milli klukkan 10 og 16,“ segir í tilkynningum frá læknanemunum.
„Tilgangurinn með Bangsaspítalanum er tvíþættur, annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á fyrsta ári tækifæri til að æfa samskipti við börn.“
Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. „Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn sé veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda,“ segir í tilkynningunni.
„Ekkert vandamál er of stórt eða of lítið fyrir bangsalæknana og hvetjum við alla til að taka daginn frá og kíkja í heimsókn.“