Fara í efni
Fréttir

Bærinn auglýsir eftir stuðningsfjölskyldum

Mynd af vef Akureyrar: María Helena Tryggvadóttir

Fleiri stuðningsfjölskyldur, sem svo eru kallaðar, vantar á Eyjafjarðarsvæðinu og hefur velferðarsvið Akureyrarbæjar auglýst eftir fjölskyldum eða einstaklingum til að taka að sér börn, tvo eða fleiri daga í mánuði.

Á vef Akureyrarbæjar segir:

Starf stuðningsfjölskyldna er fjölbreytt og felst í því meðal annars að bjóða barni/börnum að taka þátt í daglegu lífi fjölskyldunnar og tómstundum. Fyrir barnið er stuðningsfjölskylda hugsuð sem skemmtileg upplifun og tilbreyting og um leið hvíld og stuðningur fyrir forelda og/eða forráðamenn barnanna.

Sótt er um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda hjá Gæða og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Á vef bæjarins er bent á að frekari upplýsingar sé að hafa hjá Svöfu Hrund Friðriksdóttur, starfsmanni Barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar, í síma 460-1000 eða á netfangið svava.hrund.fridriksdottir@akureyri.is.