Axlarbrot og „tættur“ vöðvi eftir árás hunds
Rottweiler hundur réðst á konu á Akureyri í síðustu viku, beit hana í handlegg og felldi með þeim afleiðingum að hún axlarbrotnaði illa. Konan er óvinnufær og verður líklega næstu mánuði. Hún varð fyrir miklu andlegu áfalli og líður enn mjög illa, bæði andlega og líkamlega.
Þetta var síðdegis á fimmtudaginn. Konan var í göngutúr í Hagahverfi, nýjasta hverfi Akureyrar syðst í bænum. Hún gekk suður Kjarnagötu og þaðan niður Wilhelmínugötu. Þar sá hún mann og hund útundan sér, þeir stóðu kyrrir því hundurinn var nýbúinn að skíta í snjóinn. „Þegar ég gekk framhjá þeim stekkur hundurinn skyndilega á mig, bítur mig í olnbogann og hendir mér niður,“ segir konan við Akureyri.net. Hún vill ekki koma fram undir nafni.
„Hræðilega sárt“
„Hundurinn hékk enn í olnboganum á mér eftir að hann henti mér niður. Sleppti takinu ekki strax þótt strákurinn kallaði á hundinn að sleppa mér. Hann var með hundinn í löngu bandi en réð ekki almennilega við hann, hundurinn er svo sterkur. Eftir að að strákurinn náði að fara með hundinn frá mér kallaði ég og bað hann að hringja á sjúkrabíl, sem hann gerði,“ segir konan.
„Strákgreyið var auðvitað í sjokki,“ bætir hún við en nefnir að hún hafi ekkert heyrt frá eigendum hundsins eftir að þetta gerðist.
Kalt var í veðri og konan því vel klædd. Hún var í þykkri úlpu en hundurinn beit í gegnum hana, tannaför eru á handlegg konunnar og svöðusár við olnbogann. „Þetta var hræðilega sárt. Ég fékk morfín í æð í sjúkrabílnum vegna þess hve ég var kvalin, og síðan sýklalyf og stífkrampasprautu.“
Vöðvinn „tættur“
Úlpan var klippt utan af konunni í sjúkrabílnum og þá kom í ljós hve mikið blæddi úr sárinu. „Eftir að ég kom á spítalann var strax kallaður út bæklunarlæknir, þetta leit svo illa út að jafnvel var talið að ég þyrfti í aðgerð, en svo fór reyndar ekki.“
Konan fór í myndatöku fljótlega eftir komuna á sjúkrahúsið og strax sást að hún var axlarbrotin. „Mér var sagt að þetta væri slæmt brot,“ segir hún. „Í ljós kom að hundurinn hafði bitið í sundur þrjár sinar í hendinni og læknirinn orðaði það þannig að vöðvinn neðan við olnbogann væri tættur.“ Konan þurfti ekki í aðgerð, sem fyrr segir, heldur voru sinarnar saumaðar saman. Ekki er annað að gera varðandi axlarbrotið en bíða og vona og það sama gildir um „tætta“ vöðvann, segir hún.
„Hrikalegt áfall“
Eftir tvo daga á sjúkrahúsinu fór konan heim. Eiginmaður hennar hefur verið meira og minna frá vinnu síðan á fimmtudaginn því konan á erfitt með að vera ein heima. „Þetta var hrikalegt áfall. Mér finnst mjög erfitt að hugsa um þetta,“ segir hún og ekki leynir sér að konan er miður sín. Það tekur mikið á hana að segja frá árásinni. Hún vill engu að síður tjá sig og þau bæði, hjónin. „Við erum ekki síst að hugsa um annað fólk í hverfinu. Hér eru bæði skóli og leikskóli,“ segir maðurinn og bætir við að varla hefði þurft að spyrja að leikslokum hefði hundur ráðist á barn með þessum hætti.
Hjónin segjast hafa fengið þær upplýsingar að hundinum yrði lógað en það hefði ekki verið búið í fyrrakvöld. Akureyri.net hefur ekki náð sambandi við rannsóknardeild lögreglunnar vegna þessa máls.
VIÐBÓT - klukkan 14.05
Tilkynning um málið var birt á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra fyrir fáeinum mínútum. Þar segir meðal annars:
Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.