Fara í efni
Menning

Árlegur jólamarkaður í Skógarlundi

Það mun kenna ýmissa grasa á jólamarkaði Skógarlundar.

Undirbúningur fyrir hinn árlega jólamarkað Skógarlundar hefur verið í fullum gangi að undanförnu, starfsfólkið og leiðbeinendur í jólaskapi og komið að því að opna jólamarkaðinn á morgun, fimmtudag.

Að venju verður til sölu úrval af fallegum jólavörum, handgerðum úr leir og tré, auk annarra hluta sem starfsfólk Skógarlundar hefur unnið á árinu. Gestum verður boðið upp á kaffi og konfekt og posi verður á staðnum.

Jólamarkaðurinn verður opinn á morgun, fimmtudaginn 5. desember, kl. 12-17 og föstudaginn 6. desember kl. 12-18.

Í Skógarlundi er boðið upp á atvinnu- og hæfingartengda þjónustu fyrir einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir. Markmiðið er að efla þátttöku í daglegu lífi og auka lífsgæði þeirra sem nýta sér þjónustuna.

Fyrir þau sem ekki komast á jólamarkaðinn, en vilja skoða vörurnar er bent á verslun Skógarlundar sem er opin alla virka daga kl. 8-15:30.

Myndir af vörum og starfsfólki Skógarlundar má finna í frétt á vef Akureyrarbæjar. Akureyri.net hefur áður birt yfirlit um þá jólamarkaði sem eru í boði á Akureyri og í nágrenni með alls konar vörur, handverk og mat - sjá hér.