Fara í efni
Mannlíf

Áramótabrennur á sama stað og í fyrra

Boðið er upp á tvær áramótabrennur á svæðinu í kvöld eins og í fyrra, báðar á sama stað og þá. Önnur er vestan við svæði Golfklúbbs Akureyrar að Jaðri, á vegum Akureyrarbæjar, en hin, sem er á vegum Skógarbaðanna, er á tanganum við Eyjafjarðarbraut eystri.

  • Kveikt verður í báðum brennum kl. 20:30 í kvöld.

Vert er að geta þess að opið er í Skógarböðunum í kvöld. Þegar Akureyri.net spurðist fyrir laust eftir hádegi var ekki uppselt en einungis fáeinir miðar eftir. Opið er til klukkan 1 eftir miðnætti.

Á stóru myndinni má sjá brennustæðið við svæði golfklúbbsins og nokkra staði þar sem íbúar geta lagt bifreiðum sínum, ásamt gönguleiðum að brennunni. Smellið hér til að sjá myndina stærri.

Gönguleiðin frá bílastæðunum vestan Kjarnagötu að brennunni er um 800 metra löng, og um 700 metra löng frá bílastæðinu við golfskálann að Jaðri.

Mögulegt verður fyrir gesti að leggja bifreiðum á eftirtöldum stöðum, eins og sýnt er á myndinni

    • Opið svæði vestan við Kjarnagötu í Hagahverfinu (stærsta svæðið)
    • Innst í Ljómatúni
    • Við golfskálann að Jaðri
    • Á litlu svæði vestan Jaðarstúns við veginn að golfskálanum
    • Við grenndarstöð hjá Bónus við Kjarnagötu

 

Súlur – björgunarsveitin á Akureyri sér um flugeldasýningu sem verður skammt frá höfuðstöðvum Norðurorku við Rangárvelli og hefst hún um kl. 21 í kvöld. Flugeldasýningin er í boði Norðurorku.
 

Brennan á vegum Skógarbaðanna er á tanganum við Eyjafjarðarbraut eystri, gegnt Skógarböðunum. Myndir: Þorgeir Baldursson
Fólk er að sjálfsögðu hvatt til að fara varlega með skotelda um áramótin og muna að hirða upp flugeldarusl og koma í viðeigandi flokkun. Flugeldarusl má ekki fara í blandaðan heimilisúrgang. Sérstökum gámum fyrir flugeldarusl verður komið fyrir við verslanir Bónus í Naustahverfi og við Langholt og við grenndarstöðina norðan Ráðhússins.