Fréttir
Aldarfjórðungsafmæli Súlna fagnað – MYNDIR
30.01.2025 kl. 17:45
Fumlaust samstarf! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Landsbjargar, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Halldór Halldórsson, formaður Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri, skera afmælistertu. Mynd: Þorgeir Baldursson
Um 300 manns komu í opið hús hjá Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, í tilefni 25 ára afmælis sveitarinnar. Afmælið var 30. október á síðasta ári en á sunnudaginn var kynntu félagar í Súlum fjölbreytt starf sveitarinnar í húsakynnum hennar við Hjalteyrargötu. Heitt var á könnunni, sem kom sér vel í kuldanum, auk þess sem boðið var upp á kleinur og dýrindis afmælisköku.
Súlur urðu til við sameiningu þriggja björgunarsveita – Flugbjörgunarsveitarinnar á Akureyri, Hjálparsveitar skáta á Akureyri og Sjóbjörgunarsveitar Slysavarnarfélags Íslands. Óhætt er að fullyrða að sameiningin hafi verið mikið gæfusport.
Þorgeir Baldursson mætti í opið hús hjá Súlum með myndavélina að vopni.
Frétt Morgunblaðsins 11. september 1999 um sameininguna. Formenn björgunarsveitanna þriggja sem sameinuðust handsala samkomulagið. Frá vinstri: Ingimar Eydal formaður Hjálparsveitar skáta, Jörundur Torfason formaður Sjóbjörgunarsveitar Slysavarnafélags Íslands og Leonard Birgisson formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Akureyri. Súlur, björgunarsveitin á Akureyri svo formlega stofnuð á fundi 30. október.