Fara í efni
Fréttir

AFS með kynningu á skiptinámi á morgun

Erlendir skiptinemar á vefum AFS á Íslandi.
Fulltrúar AFS á Íslandi verða á Akureyri á morgun, fimmtudag 30. janúar, í því skyni að kynna skiptinám. Kynningin verður í stofu H9 í Menntaskólanum frá klukkan 16.00 til 17.30.
 
„Á staðnum verða bæði starfsmenn og sjálfboðaliðar AFS á Íslandi. Þetta er kjörið tækifæri til að koma og spyrja hvað skiptinám gengur út á,“ segir í tilkynningu. 
 
Þar segir um samtökin:
 
  • AFS eru alþjóðleg friðar og fræðslusamtök, sem leitast við að efla skilning milli ólíkra þjóða með því að bjóða upp á skiptináms- og sjálfboðaliðaverkefni fyrir ungt fólk. 
  • AFS eru sjálfboðaliðasamtök og má segja að hornsteinn starfs samtakanna sé hið óeigingjarna starf sjálfboðaliða.
  • Helsta markmið AFS er að auka kynni og skilning milli þjóða og fólks af ólíkum uppruna, víkka sjóndeildarhring þátttakenda, auka menningarlæsi, víðsýni og umburðarlyndi.
  • Þátttakendur eru hvattir til að taka þátt í samfélaginu og láta sig varða það sem þar á sér stað og taka afstöðu.