Fara í efni
Menning

A! Gjörningahátíð að baki – MYNDIR

Mynd: Daníel Starrason

A! Gjörningahátíð sem hófst á fimmtudag í Listasafninu á Akureyri lauk í gærkvöldi. Þessi alþjóðlega hátíð, sem er sú eina sinnar tegundar hér á landi, var nú haldin í 10. skipti.

Þátttakendur voru: Magnús Helgason, Hekla Björt Helgadóttir, Fríða Karlsdóttir, Dustin Scott Harvey, Ashima Prakesh og Éva Berki, Véný Skúladóttir, Christalena Hughmanick, Clare Almere, Henrik Koppen, Kristján Helgason, Guðmundur Steinn Gunnarsson og Birgir Sigurðsson, Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, Kraftverk (Anna Kolfinna Kuran, Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Elísabet Birta Sveinsdóttir, Gígja Jónsdóttir og Guðrún Selma Sigurjónsdóttir), Heather Sincavage og Sarah Hammeken.

Daníel Starrason fylgdist vel með hátíðinni með haukfránum augum ljósmyndarans og býður til myndaveislu.