Fréttir
70 ára afmælishátíð Krabbameinsfélagsins
21.11.2022 kl. 11:10
Í tilefni 70 ára afmælis Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis bíður félagið upp á dagskrá og léttar veitingar í dag, mánudaginn 21. nóvember. Viðburðurinn er opinn öllum og verður haldinn í menningarhúsinu Hofi, kl. 17:00-19:00.
Dagskráin:
- Kynning á starfsemi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis – Selma Sigurjónsdóttir formaður félagsins
- Þögull morðingi – Nick Cariglia sérfræðingur í meltingarsjúkdómum
- Reynslusaga – Hildur Eir Bolladóttir
- Afhending á styrk frá Dekurdögum 2022 – Inga Vestmann og Vilborg Jóhannsdóttir
- Skemmtiatriði – Jónína Björt og Ívar Helgason syngja fyrir gesti
- Veitingar – Pinnamatur frá Garún & afmæliskaka frá Bakarínu við Brúna
„Við hvetjum sem flesta til að mæta og njóta dagsins með okkur,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Hér er hægt að sjá viðburðinn á Facebook.