Fréttir
50 ára ösp brotnaði í hvassviðrinu
28.09.2021 kl. 11:45
Stór, hálfrar aldar gömul ösp brotnaði í garði við Suðurbyggð í hvassviðrinu snemma í morgun og féll yfir á lóð nágrannans. Einhverjar skemmdur urðu á þakrennu, kerru og ef til vill fleiru en snúrustaur bjargaði því að stór bolur félli á bíl við á stæði við húsið.
Fleiri tré munu hafa brotnað í bænum en ekki er vitað til þess að verulegar skemmdir hafi orðið.