„Mjög fjölbreyttar sýningar í ár“
Gestir Listasafnsins á Akureyri voru 15% fleiri á nýliðnu ári en 2020 og það kom Hlyni Hallssyni, safnstjóra, skemmtilega á óvart. „Það var aðallega útlendingum sem fjölgaði svona mikið hjá okkur,“ segir Hlynur við Akureyri.net.
Hlynur kynnti í vikunni hvað safnið býður upp á á þessu ári. Hann segir fjölbreytni einkenna starfsemina að þessu sinni. „Hér verða mjög fjölbreyttar sýningar í ár,“ segir safnstjórinn. Alls verða 18 sýningar í húsakynnum safnsins á árinu, svipað og undanfarið.
Á kynningarfundi í safninu kom einnig út ný árbók og undirritaður nýr samstarfssamningur við Norðurorku og skrifuðu þau Hlynur og Gunnur Ýr Guđmundsdóttir, verkefnastjóri, undir samninginn. Árbók safnsins er nú öllum aðgengileg og gjaldfrjáls í anddyri safnsins auk valdra staða á Akureyri og víðar.
„Eflir barna- og fjölskyldustarf“
Samningur Listasafnsins og Norðurorku nær til næstu fimm ára og er mikið fagnaðarefni að sögn Hlyns Hallssonar, safnstjóra: „Það gleður okkur mjög að eiga svona góðan styrktaraðila eins og Norðurorku, enda hefur þetta samstarf verið farsælt síðustu árin. Sem fyrr beinist það sérstaklega að barna- og fjölskyldustarfi og með þessum nýja fimm ára samningi gefst okkur svigrúm til þess að gera langtímaáætlanir og efla starfið enn frekar.“
Sýningaárið hafið
Sýningaárið 2022 hófst formlega síðastliðinn laugardag þegar samsýningin Nánd var opnuð. „Þar sýna sex alþjóðlegir myndlistarmenn og er athyglinni beint að innri rökfærslum listmálunar sem eru staðsettar, skuldbundnar og innbyggðar. Síðan rekur hver sýningin aðra,“ segir í tilkynningu frá safninu.
Meðal myndlistarmanna ársins eru:
- Gústav Geir Bollason
- Kristinn G. Jóhannsson
- Auður Lóa Guðnadóttir
- Steinunn Gunnlaugsdóttir
- Egill Logi Jónasson
- Rebekka Kühnis
- Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá
- Páll Stefánsson
- Spessi
Einnig verða fastir liðir á dagskrá eins og A! Gjörningahátíð, Sköpun bernskunnar og nemendasýningar VMA og Myndlistaskólans.
Allt til enda
Þriðjudagsfyrirlestrarnir hófu að nýju göngu sína í síðustu viku og verða áfram stór þáttur í fræðslustarfi Listasafnsins, en þeir eru settir upp í samvinnu við Verkmenntaskólann á Akureyri, Myndlistarfélagið, Menntaskólann á Akureyri og Gilfélagið. Þeir eru sem fyrr haldnir á hverjum þriðjudegi kl. 17.00-17.40 yfir vetrartímann. Listsmiðjur undir yfirskriftinni Allt til enda verða á dagskrá í mars, apríl og maí undir leiðsögn Jóns Ingibergs Jónsteinssonar, Magnúsar Helgasonar og Þykjó – Sigurbjargar Stefánsdóttur og Ninnu Þórarinsdóttur. Aðrar fjölbreyttar smiðjur verða einnig í boði á árinu.