Minningartónleikar um Jaan Alavere
- Söngfélagið Sálubót
- Jónína Björt Gunnarsdóttir
- Óskar Pétursson
- Jónas Reynir Helgason
- Bolli Pétur Bollason
- Grete Alavere
- Marika Alavere
- Valmar Väljaots
- Eyþór Ingi Jónsson
- Hljómsveitin Gourmet - Trausti Már Ingólfsson, Knútur Emil Jónasson, Borgar Þórarinsson og Pétur Ingólfsson.
- Kvennakór Akureyrar
Jaan Alavere fæddist í Eistlandi þann 4. apríl árið 1969 sem fyrr segir. Í fréttatilkynningu vegna tónleikanna segir:
„Hann hóf fimm ára gamall píanónám, og sjö ára tók hann einnig að læra á fiðlu. Í Tallinn gekk Jaan í grunn- og framhaldsskóla sem sérhæfði sig í tónlistaruppeldi, og nítján ára gamall útskrifaðist hann sem einleikari á fiðlu en jafnframt sem tónlistarkennari og píanóleikari. Hann fór síðan í tónlistarháskóla og lagði stund á fiðluleik og tónsmíðar.
Þrátt fyrir ungan aldur, þá bjó Jaan yfir mikilli reynslu sem tónlistarmaður. Hann tók þátt í tónlistarkeppnum fyrir heimaland sitt, lék í fjölda hljómsveita, allt frá dans- og jazzhljómsveitum til sinfóníuhljómsveita. Árið 1994 fékk Jaan ráðningu sem fiðluleikari við sinfóníuhljómsveit elsta leikhúss í Eistlandi, í borginni Tartu. Og síðar varð hann konsertmeistari þeirrar hljómsveitar þangað til hann flutti til Íslands.
En það var haustið 1998, sem Jaan Alavere var ráðinn deildarstjóri tónlistardeildar Stórutjarnaskóla. Og frá þeim tíma var hann einnig söngstjóri og undirleikari Söngfélagsins Sálubótar, ásamt því að starfa sem organisti í sóknum nágrannabyggðanna.
Það kom fljótlega í ljós að feimnislegi rauðhærði strákurinn frá Eistlandi, sem komið hafði til Íslands, var ekki bara einhver venjulegur tónlistarkennari. Hann spilaði á nánast öll önnur hljóðfæri en blásturshljóðfæri.
Jaan útsetti tónlist fyrir hljómsveitir og kóra rétt eins og hendi væri veifað og hann samdi lög og tónverk að því er virtist fyrirhafnarlaust. Og lögin hans Jaans snertu gjarnan innstu strengi sálarinnar og létu engan ósnortinn.
Jaan var virkur þátttakandi í tónlistarlífinu á Norðurlandi. Hann lék meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og var konsertmeistari þar um hríð. Síðast en ekki síst, þá naut hann sín vel í starfi leikhúsanna, bæði á Akureyri og í Þingeyjarsýslu. Já, í leikhúsinu var Jaan á heimavelli. En þrátt fyrir mikla vinnusemi var Jaan mikill fjölskyldumaður. Síðan hann flutti til Íslands eignaðist hann þrjár dætur, Marit, Marge og Grete, með eiginkonu sinni Mariku. Jaan gerði allt fyrir stelpurnar sínar.
Hann kenndi öllum dætrum sínum að elska tónlist og verður hann ávallt þeirra stærsta fyrirmynd. Já, Jaan var besti eiginmaður, faðir, sálufélagi, vinur, kennari og vinnufélagi sem hægt er að óska sér. Hans verður sárt saknað, enda skilur hann eftir sig stórt skarð sem ómögulegt er að fylla.“