Fara í efni
Menning

Litla tónleikaröð Hælisins hefst á morgun

Erla Mist Magnúsdóttir söngkona og Hallgrímur Jónas Ómarsson gítarleikari koma fram á Hælinu í Kristnesi á morgun, laugardag.

Litla tónleikaröð Hælisins  í Kristnesi hefst á morgun, á laugardaginn 13. júlí kl 15.00. 

Þá stíga á stokk í skjólgóða skoti Hælisins Erla Mist Magnúsdóttir söngkona og Hallgrímur Jónas Ómarsson gítarleikari, sem bæði eru kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri og flytja ljúf lög fyrir gesti og gangandi. Enginn aðgangseyrir en tilvalið að kaupa kaffi og kruðerí og njóta með tónleikunum. Hollvinir Hælisins eru bakhjarl tónleikanna,“ segir í tilkynningu frá Hælinu.

„Sunnudaginn 28. júlí mæta svo hjónin músíkölsku úr Svarfaðardal; Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Hjartarson og flytja okkur vel valin lög og að lokum koma nágrannar Hælisins þann 17. ágúst en það eru þau Bóndi og Kerling eða Brynjólfur Brynjólfsson og Sigríður Hulda Arnardóttir. Þau flytja örugglega sitt frumsamda efni sem kom út á plötu fyrr á árinu.“