Fara í efni
Mannlíf

Segja starfsstjórnina svíkja gefin loforð

Skemmtiferðaskip við bryggju á Akureyri. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Allt bendir til þess að starfsstjórnin ætli að leggja innviðagjald á skemmtiferðaskip með sex vikna fyrirvara á ferðir sem þegar hafa verið seldar og því um afturvirka gjaldtöku að ræða og að með því sé brotið á jafnræði þeirra sem starfa í ferðaþjónustu því einungis ferðamenn sem koma með skemmtiferðaskipum eigi að greiða þetta gjald.

Þetta kemur fram í harðorðu bréfi samtaka sem starfa við og hafa hag af komum skemmtiferðaskipa til landsins hafa sent þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar, starfsstjórnarinnar sem verið hefur við völd frá því að þing var rofið og boðað til kosninga sem fram fara í dag. Bréfið er stílað á Sigurð Inga Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, og Bjarna Benediktsson forsætisráðherra. 

Samtökin sem um ræðir eru Cruice Iceland, CLIA (Cruise Lines International Association) og AECO Association of Arctic Expedition Cruise Operators), en þau, ásamt aðildarfyrirtækjum, sveitarstjórnum og hafnarsjóðum hafa mótmælt harðlega fyrirvaralausri skattlagningu á skemmtiferðaskip með mjög háu nýju innviðagjaldi. 

Samtökin hafa gagnrýnt harðlega stjórnsýsluna í kringum þessa skattlagningu þar sem fjármálaráðuneytið hafi lofað að gjaldið yrði eingöngu lagt á ferðir sem seldar eru eftir 1. janúar 2025. Það hafi einnig komið fram í ræðu Njáls Trausta Friðbertssonar, formanns fjárlaganefndar, þann 15. nóvember. „Ekki er að sjá annað af samþykktum lögum þingsins en að starfsstjórnin ætli sér að svíkja þetta og ekki er það til marks um aukinn fyrirsjáanleika eins og ferðamálaráðherra boðar í aðdendri grein í gær,“ segir meðal annars í bréfinu sem ritað var og sent í gær og vísað í grein sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifaði og birtist á vefmiðlinum Vísi 28. nóvember

Komið aftan að samtökunum

„Komið var aftan að Cruise Iceland, AECO, CLIA og Cruise Europe í þessu máli og er ljóst að þessi slælega stjórnsýsla mun hafa víðtæk og mjög neikvæð áhrif, sérstaklega á landsbyggðinni en einnig fyrir geirann í heild sinni og þá ekki aðeins á Íslandi. Samkvæmt ferðamálastefnunni til 2030 átti að skoða innviðagjald í kjölfar greiningar á gjaldtöku í greininni,“ segir einnig í bréfinu og vísað í að í ferðamálastefnu komi skýrt fram að samhliða endurskoðun á gjaldtöku í ferðaþjónustu verði unnið að löggjöf um sérstakt gjald, innviðagjald, sem lagt verði á komur erlendra skemmtiferðaskipa og tekjur af þeirri gjaldtöku notaðar til uppbyggingar innviða fyrir ferðaþjónustu. 


Skemmtiferðaskipið Norwegian Star við Oddeyrarbryggju. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Um þetta segir í bréfinu: „Ljóst er að engin endurskoðun hefur farið fram á gjaldtöku í ferðaþjónustunni og kom því löggjöfin frá ráðuneytinu mjög á óvart. Ekki hafði verið minnst á innviðagjald í samtölum við starfsfólk ráðuneytisins, né nokkurt formlegt samráð farið fram um fyrirhugaða gjaldtöku. Hagaðilar áttu ekki von á innviðagjaldi strax, hvað þá með sex vikna fyrirvara. Það er verulegt áhyggjuefni hvernig þessi löggjöf hefur verið sett, án nægilegs samráðs eða greiningar helstu hagsmunaaðila. Skyndileg innleiðing 2.500 króna skatts á hvern farþega á dag veldur óhóflegri byrði félaga sem öll hafa þegar gengið frá fjárhagsáætlunum og ferðaáætlunum fyrir árið 2025. Þetta skapar óviðunandi ástand fyrir skipafélög, með áhrifum sem ná til smærri hafna á Íslandi sem treysta á efnahagslegt framlag ferðamanna af skemmtiferðaskipum.“

Efnahagslegum forsendum ógnað

Bréfritarar segja ákvörðun starfsstjórnarinnar ógna efnahagslegum forsendum reksturs skemmtiferðaskipa á Íslandi verulega með afturvirkninni. Hún sendi einnig neikvæð skilaboð til alþjóðlegra fyrirtækja um fyrirsjáanleika og áreiðanleika markaðarins enda eigi alþjóðleg fyrirtæki ekki von á svona slæmri stjórnsýslu, eins og það er orðað í bréfinu. Bent er á að samráð og vönduð skipulagning sé nauðsynleg til að tryggja að aukin gjaldtaka hins opinbera nái þeim markmiðum sem henni er ætlað án óvljandi skaða fyrir atvinnugreinina eða áfangastaði sem hún styður. 

„Þetta er sérstaklega slæmt í ljósi þess að skipafélögin hafa fellt sig við aukna gjaldtöku, svo lengi sem hún er ekki afturvirk og innleidd með fyrirsjáanlegum hætti 2-3 ár fram í tímann,“ segja bréfritarar. Bent hefur verið á að ferðir með skemmtiferðaskipum séu að jafnaði seldar með löngum fyrirvara og gjaldtaka eins og hér um ræðir með skömmum fyrirvara komi því beint niður á fyrirtækjunum sjálfum sem ekki geta innheimt það í verði á þeim ferðum sem í boði eru.

Skipafélög sett í ómögulega stöðu og aflýsa ferðum

„Það er óverjandi að skip eins og Norwegian Prima sem heimsækir Ísland átta sinnum yfir árið þurfi að reiða af hendi 55 milljónir ofna á önnur gjöld fyrir hverja heimsókn sem samsvarar 440 milljónir fyrir átta komur eins skips til Íslands, án þess að geta innheimt gjaldið af farþegum. Þetta er yfirgengileg viðbótargjaldtaka þegar haft er í huga að hún er afturvirk,“ segja bréfritarar og vekja athygli á að fjöldi skipafélaga hefur tilkynnt aðildarfélögum Cruice Iceland að þessi afturvirka gjaldtaka setji félögin í ómögulega stöðu fyrir næsta ár þannig að nauðsynlegt verði að aflýsa ferðum. 


Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima liggur hér við Oddeyrarbryggju, en Caribbean Princess er að leggja úr höfn. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Krefjast svara og upplýsinga um ráðstöfun gjaldsins

Cruice Iceland beinir því eftirfarandi spurningum til fjármálaráðuneytisins og minnir á skyldu ráðuneytisins til að svara. Fyrri erindum hafi nefnilega ekki verið svarað hingað til. 

1. Hvernig færir ráðuneytið rök fyrir því að jafnræðis sé gætt í gjaldtöku í ferðaþjónustu þegar rúmlega sexfaldur gistináttaskattur fellur bara á þennan hóp farþega í formi innviðagjalds? a. Skipin nota innviði mjög takmarkað, aðra en hafnir og greiða sérstaklega fyrir notkun hafnarinnviða, landtenginga á rafmagni og annað slíkt. b. Skipin létta raunar álagi af t.d. hringvegi landsins.

2. Hvernig er upphæð innviðagjaldsins rökstudd? Hvort sem er um samkeppnissjónarmið eða jafnræðissjónarmið að ræða þá krefst Cruise Iceland aðgangs að þeim gögnum sem liggja til grundvallar.

3. Hvernig rökstyður ráðuneytið að það sé góð stjórnsýsla að leggja innviðagjaldið á með sex vikna fyrirvara á meðan rök voru færð fyrir því að lægri gistináttaskattur yrði lagður eingöngu á óseldar ferðir í lok árs 2023.

4. Á hvaða forsendum telur ráðuneytið sig hafa heimild frá þinginu til að setja lög um innviðagjald án þess að hafa farið í greiningu á umhverfi gjaldtöku í ferðaþjónustu eins og ferðamálastefnan 2030, samþykkt af þinginu, mælir fyrir um?

5. Í ferðamálastefnu kemur fram að innviðagjaldinu eigi að ráðstafa í uppbyggingu innviða. Cruise Iceland krefst upplýsinga um hvernig fjármagninu verður ráðstafað. Mun það sannanlega fara til uppbyggingu innviða á þeim svæðum sem skipin heimsækja?

Undir bréfið ritar Sigurður Jökull Ólafsson, stjórnarformaður Cruice Iceland. Aðildarfélagar Cruice Iceland eru eftirtaldir: Hafnir á Akranesi, Akureyri, Djúpavogi, Eskifirði, Neskaupsstað, Grímsey, Grundarfirði, Hafnarfirði, Hrísey, Húsavík, Höfn, Ísafirði, Raufarhöfn, Reykjanesi, Reykjavík, Sauðárkróki, Hofsós, Seyðisfirði, Borgarfirði eystra, Siglufirði, Skagaströnd, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum, Vesturbyggð og Þorlákshöfn. Þjónustufyrirtækin Samskip, Gára, Atlantik, Iceland Travel, Nonni Travel, Arctic Adventures, Ekran, Norðurflug, Vesturferðir, Skeljungur og SDK group.