Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 212. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, flestar hafa vakið mikil viðbrögð og upplýsingar borist um langflestar þeirra.

Hefurðu hugmynd um hvar þessi mynd er tekin eða hverjar konurnar eru? Myndin er stærri hér að neðan. Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

    • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er bærinn Brún í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR