Mannlíf
Fallegir fornbílar við Hof – MYNDIR
30.06.2022 kl. 08:40
Inga Vestmann mætir alla jafna við Hof á miðvikudagskvöldum og sýnir Rúdolf - Volkswagen „rúgbrauðið“ glæsilega. Hér er Inga ásamt Daníel Snæ frænda sínum í gærkvöldi. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Félagar í fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar hittast öll miðvikudagskvöld í sumar, eins og á síðasta ári, aka stuttan hring um miðbæinn og leggja síðan bílunum við menningarhúsið Hof. Þar eru djásnin til sýnis fram eftir kvöldi. Akureyri.net leit við í gær þegar hátt í 30 bílar prýddu svæðið og vöktu verðskuldaða athygli sem endranær. Sjón er sannarlega sögu ríkari.