- 38 stk.
- 03.04.2021
3. apríl 2021 - Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kemur til heimahafnar eftir siglingu frá Skagen í Danmörku þar sem skipið var smíðað. Skipverjar stigu á land í Krossanesi í gær til þess að fara í seinni sýnatöku vegna Covid-19, Vilhelm hélt síðan frá bryggju á ný og dólaði í grennd við Hrísey þar til í morgun að hann sigldi inn á Pollinn og lagðist loks að Togarabryggjunni um tíuleytið. Töluverður fjöldi fólks tók á móti skipinu, í 10 stiga hita og sól, en stífri sunnanátt. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.