- 25 stk.
- 06.02.2021
6. febrúar 2021 - Líf og fjör var í dag á nýrri æfingabraut fyrir vélsleðamenn, sem útbúin var fyrir helgi á svæði Bílaklúbbs Akureyrar. Þar brunuðu nokkrir og stukku á sleðum sínum og höfðu augljóslega gaman af, enda aðstæður frábærar og veðrið eins og best verður á kosið. Langt er síðan svo góð braut hefur staðið vélsleðamönnum í bænum til boða enda voru þeir eins og kýr að vori og léku á als oddi! Akureyri.net leit við með myndavélina, og fylgdist með hópnum æfa sig. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.