- 12 stk.
- 27.04.2021
26. apríl 2021 - Fólk með myndavélar er gjarnan á ferli þegar líður á kvöld og jafnvel inn í nóttina; fangar sólina áður en hún gengur til viðar og mánann sem tekur völdin í fjarska. Akureyri og Pollurinn hentuðu óvenju vel til ljósmyndunarleikja í kvöld eftir að seglsnekkjan A skreið inn á Pollinn og lagðist til hvílu austur undir Vaðlaheiðinni.