- 26 stk.
- 27.02.2022
27. febrúar 2022 – Á þriðja hundrað manns komu saman á Ráðhústorgi í dag á samstöðufundi með úkraínsku þjóðinni vegna árásar Rússa á landið. Til fundarins var boðað af Andrii Gladii, úkraínskum alþjóðastjórnmálafræðingi sem búsettur hefur verið á Akureyri í þrjú ár og starfar hjá Norðurslóðanetinu sem er til húsa í rannsóknarhúsinu Borgum.