- 60 stk.
- 02.07.2022
29. júní til 2. júlí 2022 – Um 2000 strákar tóku þátt í N1 móti KA í knattspyrnu sem stóð frá miðvikudegi til laugardags. Það eru strákar í 5. aldursflokki, 11 og 12 ára, sem þar reyna með sér. Breiðablik sigraði í keppni A-liða eftir flottan úrslitaleik við Stjörnuna en keppt var í nokkrum deildum. Mótið, sem var nú haldið í 36. skipti, er eitt allra fjölmennasta og glæsilega íþróttamót sem haldið er hérlendis ár hvert.