- 8 stk.
- 28.11.2020
27. nóvember 2020 – Ljósin tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi. Við þá árlegu athöfn er alla jafna töluverður fjöldi fólks viðstaddur síðdegis um helgi, en þar sem aðeins fáir mega koma saman nú um stundir vegna Covid var athöfninni haldið leyndri. Erik Valdemar Egilsson, sex ára, studdi á hnapp og kveikti á seríunni. Yngri barnakór Akureyrarkirkju söng nokkur jólalög við þetta tækifæri undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.