- 13 stk.
- 30.08.2021
28. ágúst 2021 - Áberandi vegglistaverk eftir Margeir heitinn Sigurðarson – listamanninn Dire – er á austurgafli Kaupvangsstrætis 6, þar sem veitingastaðurinn Rub 23 er nú til húsa; í portinu við gömlu höfuðstöðvar Kaupfélags Eyfirðinga. Verkið gerði Margeir, sem lést 2019, á Akureyrarvöku 2014. Það hafði mjög látið á sjá en Örn Tönsberg vinur Margeirs, sem vann að nokkrum listaverkum með honum á Akureyrarvökunni 2014, endurgerði verkið á laugardaginn í samstarfi við Finn Fjölnisson, málarameistara, og Birgi Stefánsson.