- 17 stk.
- 29.01.2023
29. janúar 2023 – Kveðjumessa séra Svavars Alfreðs Jónssonar var í Akureyrarkirkju í dag. Hann hefur verið sóknarprestur í 23 ár en færir sig um set og verður prestur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Séra Hildur Eir Bolladóttir og séra Jóhanna Gísladóttir þjónuðu fyrir altari en séra Svavar Alfreð prédikaði. Kór Akureyrarkirkju og Eldri barnakór Akureyrarkirkju sungu, stjórnendur og organistar voru Eyþór Ingi Jónsson, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Þorvaldur Örn Davíðsson. – Ljósmyndir Skapti Hallgrímsson