- 26 stk.
- 21.11.2021
21. nóvember 2021 - KA/Þór féll úr Evrópubikarkeppni kvenna í handbolta um helgina þegar liðið mætti CB Elche í tvígang á Spáni í 32-liða úrslitum. Íslands- og bikarmeistararnir töpuðu 22:18 í gær, laugardag, en unnu 21:20 í dag. Spænska liðið vann því samanlagt 42:39. Elvar Jónsteinsson var með í för og sendi Akureyri.net meðfylgjandi myndir. Að auki er mynd af hluta hópsins þegar ekið var af stað frá KA-heimilinu á miðvikudaginn var.