- 12 stk.
- 13.12.2020
13. desember 2020 – Jólasveinar eru ólíkindatól eins og alþjóð veit. Tveir eiga að vera komnir til byggða samkvæmt áreiðanlegum heimildum, þeir Stekkjastaur og Giljagaur og því voru það væntanlega þeir sem léku sér á róðrabrettum á Pollinum um hádegisbil. Einhverjir bræðra þeirra virðast þó hafa ruglast í ríminu, flett dagatalinu of hratt eða bara laumast ofan úr fjöllunum áður en röðin kom að þeim. Hvað um það, altjent voru fleiri en tveir á bretti, skemmtu sér greinilega vel og fjöldi fólks fylgdist með af göngustígnum við Drottningarbraut eða úr bílum sínum. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.