- 30 stk.
- 08.06.2021
6. júní 2021 - KA/Þór varð Íslandsmeistari í handbolta í fyrsta skipti, þegar stelpurnar unnu Val 25:23 í Valsheimilinu. Tvo sigra þurfti í lokaúrslitunum til að verða meistari og KA/Þór hafði þegar unnið Val á Akureyri. Skapti Hallgrímsson tók á móti meisturunum á Akureyrarflugvelli og myndaði þær aftur um kvöldið.